- Setja upp Node.js og NPM og nota til að sækja pakka.
- Nota tól fengin af NPM.
- Keyra tól í vinnuflæði með
package.json
.
Vinna má út frá sýnilausn á verkefni 5.
Í verkefnum 2–6 munum við vinna áfram með sama verkefni og byggja ofan á það:
- Verkefni 2 skilgreinir grunn HTML og síður.
- Verkefni 3 bætir við grunn viðmóti.
- Verkefni 4 setur upp útlit (e. layout).
- Verkefni 5 setur upp grind og gerir útlit skalanlegt (e. responsive).
- Verkefni 6 setur upp tól til að hjálpa við skipulag og vinnu.
Sama gildir um útlit og í verkefni 5, útlit ætti að haldast alveg það sama, eina sem breytist er hvernig verkefnið er uppsett.
Til þess að geta notað þessi tól þarf að setja upp Node.js, sækið „Recommended For Most Users“. Eftir að þið hafið keyrt uppsetningar forrit getið þið opnað Command prompt/terminal/skel og keyrt:
> node -v
v20.17.0 # eða sú útgáfa sem þið sóttuð
> npm -v
10.8.2 # eða álíka
Ef þið fáið þetta ekki upp, prófið að endurræsa. Annars fá aðstoð í dæmatímum, í fyrirlestri, tölvupósti eða á slack.
Setja skal upp sass
, browser-sync
, stylelint
og concurrently
til að nýta Sass og geta gert breytingar sem sjást strax í vafra.
Fyrst þarf að búa til package.json
með því að keyra npm init
í verkefnamöppu.
Síðan þarf að sækja hvert tól með npm install --save-dev <nafn á tóli>
.
Skipta skal CSS upp í mismunandi skrár undir styles/
.
Í styles/config.scss
skal geyma allar stillingar fyrir verkefni og nota þær á viðeigandi stöðum.
Þegar skipunin npm run dev
er keyrð skal verkefnið keyra upp vefþjón með browser-sync
, þýða sass skrár og fylgjast með breytingum á HTML og Sass.
Setja skal upp stylelint með stylelint-config-standard
, stylelint-config-sass-guidelines
, .stylelintrc
ætti að innihalda:
{
"extends": ["stylelint-config-standard", "stylelint-config-sass-guidelines"],
"rules": {
"import-notation": null,
"selector-no-qualifying-type": null
}
}
Þegar skipunin npm run lint -s
er keyrð skal keyra stylelint með þessum reglum og ættu engar villur að koma fram.
Setja skal upp verkefnið á GitHub og skila með slóð á repo. Tengja skal Netlify við GitHub repo.
- 30% – CSS flutt yfir í Sass
- 30% – stylelint uppsett og engar villur
- 20% – Verkefni sett upp með git, repo á GitHub og tengt þaðan við Netlify
- 20% – Verkefni sett upp með
package.json
og viðeigandi scriptum
Verkefni sett fyrir mánudaginn 30. september 2024.
Skila skal í Canvas, seinasta lagi fyrir lok dags fimmtudaginn 3. október 2024.
Skilaboð skulu innihalda:
- Slóð á verkefnið keyrandi í hýsingu
- Slóð á GitHub repo fyrir verkefni. Dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo. Notendanöfn þeirra eru:
digitalsigga
ofurtumi
osk
polarparsnip
reynirjr
Skila má eins oft og þið viljið þar til skilafrestur rennur út.
Leyfilegt er að ræða, og vinna saman að verkefni en skrifið ykkar eigin lausn. Ef tvær eða fleiri lausnir eru mjög líkar þarf að færa rök fyrir því, annars munu allir hlutaðeigandi hugsanlega fá 0 fyrir verkefnið.
Ef stórt mállíkan (LLM, „gervigreind“, t.d. ChatGTP) er notað til að skrifa part af lausn skal taka það fram. Sjá nánar á upplýsingasíða um gervigreind hjá HÍ.
Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 5% hvert, samtals 40% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 10%, samtals 20% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1